Björgvin Daði og Helena
Hrossaræktin okkar
07.04.2012 13:35
Slaktauma töltarinn Stjörnustæll
Mette Mannseth og Stjörnustæll enduðu í 2 sæti í slaktaumatölti með einkunnina 7,38 í Meistaradeild Norðurlands um daginn. Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn sem og eigendum. Stjörnustæll er undan Ramma frá Búlandi og Sögu frá Bakka sem við eigum til helmingar á móti Baldri Þórarinssyni sem ræktaði hestinn. Eigendur af Stjörnustæll er Baldur og Guðmundur Óli Gunnarsson.


Skrifað af Helena Ketilsdóttir
30.03.2012 10:22
Reiðnámskeið og ný rétt
Þá er Heiðmar búinn með sitt fyrsta námskeið. Hafði hann gaman af.
Heiðmar er stundum full kjarkaður og vill fara hratt.
Ný rétt
Reistum rétt við vetrahólfið þannig að nú erum við með aðhald að vetri og sumri til.

Heiðmar og Blakkur

Nýja réttin
Heiðmar er stundum full kjarkaður og vill fara hratt.
Ný rétt
Reistum rétt við vetrahólfið þannig að nú erum við með aðhald að vetri og sumri til.
Heiðmar og Blakkur
Nýja réttin
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
25.03.2012 21:54
Fréttir af Heklu afkvæmum
Stapi sem er undan Þorra frá þúfu er kominn til Bretlands. Þá er Sparta Vilmundardóttir(4v) í þjálfun hjá Bylgju Gauksdóttir og gengur það bara mjög vel, lofar hún góðu. Þá er Gígja undan Hrym frá Hofi í þjálfun hjá Daniel Jóns. og gengur það einnig mjög vel. Það verður gaman að fylgjast með Spörtu og Gígju áfram.


Aðrar fréttir.
Prufuðum skeiðið í Aþenu(4v) og það virðist vera í lagi :)
Helena og Ísak
Björgvin Daði og Aþena
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
05.02.2012 19:30
Tamningar
Tamningar ganga vel við erum byrjuð að fara í rekstra einu sinni í viku. Heiðmar er einu sinni í viku á reiðnámskeiði og ríður út eitthvað þess á milli.
Hrossin sem eru inni núna eru.
- Blakkur gamli sem Heiðmar okkar ríður út á.
- Ísak undan Hrym og Sögu, Helena þjálfar hann í vetur
- Glitnir undan Eldjárn og Heklu = Talsvert taminn
- Vörður 5.v undan Þóroddi og Heklu = Rétt reiðfær
- Haukur 5.v undan Gígjari og Sögu = Er í gangsetningu
- Aþena 4.v undan Þóroddi og Hrönn = Er í gangsetningu
- Meitill 2.v graðhestur undan Álfi og Sögu.
Mynd af Aþenu tekinn í góða veðrinu í dag
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
24.12.2011 15:38
Jól 2011
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
kærleikskveðjur Björgvin Daði, Helena, Hrannar og Heiðmar
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
11.12.2011 22:06
Tekið inn
Í dag tókum við inn 5 hross.
Aþena(4v) undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Hrönn
Haukur(5v) undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Sögu
Ísak(7v) undan Hrym frá Hofi og Sögu
Glitnir(6v) undan Eldjárni frá Tjaldhólum og Heklu
Meitill(2v) undan Álfi frá Selfossi og Sögu
Þannig að núna förum við að blogga á ný. Þannig að fylgist með.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
19.10.2011 22:55
Nýtt blub komið
Við erum búinn að uppfæra blubbið á ræktunarhryssunum okkar og afkvæmum þeirra hér á heimasíðunni. Sjá Ræktunar hryssur. Hrossin okkar hækka lítilega, Hekla hækkar um 1 stig og einhver afkvæmi hennar eða útaf henni hækka um 1 stig. Alltaf gaman þegar hrossin hækka.
Hér er top 10 listinn fyrir sýnda stóðhesta
1. Spuni frá Vesturkoti 133
2. Gári frá Auðsholtshjáleigu 128
3. Arður frá Brautarholti 128
4. Sjóður frá Kirkjubæ 128
5. Blær frá Torfunesi 127
6. Arion frá Eystra-Fróðholti 127
7. Víðir frá Prestsbakka 127
8. Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu 127
9. Álfur frá Selfossi 127
10. Þeyr frá Prestsbæ 126
Gári, Arður, Blær og Víðir hafa aldrei verið tískuhestar og eflaust ekki fengið bestu merarnar. Góður árangur hjá þeim.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
12.10.2011 22:02
Frí frá hrossum
Þá erum við búinn að sleppa öllum hrossum. Núna síðast var Aþena inni undan Þóroddi(8,74.ae) og Hrönn(8,37.ae) og henni til samlætis var Ísak undan Hrym frá Hofi og Sögu. Aþena var gerð reiðfær en hún er fyrsta afkvæmið undan Hrönn sem kemur á tamninga aldur. Hún tamdist mjög vel, hún er rúm og opinn á gangi, fljót að læra og virðist vera frekar sterk. Við erum mjög spennt fyrir henni. Ísak var bara í léttri þjálfun og notaður í teymingar og sem selskap fyrir Aþenu. Við tökum væntanlega aftur inn nóv/des.
Meðfylgjandi myndir er af Aþenu sem folald og í dag áður en við slepptum henni.
Seinni myndin er tekinn úr farsímanum og gæðin eftir því.
Tíminn er fljótur að líða.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
26.09.2011 21:37
Sónarskoðun
Í dag sónarskoðuðum við Sögu og Hrönn. Saga reyndist geld en Hrönn var með 35 daga fyli.
Það sem er fylfullt hjá okkur í ár er því:
Hekla fylfull við Eld frá Torfunesi (a.e. 8,37)
Rún fylfull við Spuna frá Vesturkoti (a.e. 8,92)
Hrönn fylfull við Konsert frá Korpu (a.e. 8,54)
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
- 1