Björgvin Daði og Helena
Hrossaræktin okkar
14.08.2011 21:34
Snúningar með hross
Í dag fórum við með Hauk(undan Gígjari) í frí. Hann er orðinn vel reiðfær,svarar öllu vel og við ætlum ekki að gera neitt meira með hann að sinni. Þá tókum við Aþenu inn en hún er undan Þóroddi og Hrönn okkar. Þetta er fyrsta hrossið sem við temjum undan Hrönn og okkur finnst það mjög spennandi. Síðan fórum við með Sögu undir Fróða frá Staðartungu.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir