Björgvin Daði og Helena
Hrossaræktin okkar
05.02.2012 19:30
Tamningar
Tamningar ganga vel við erum byrjuð að fara í rekstra einu sinni í viku. Heiðmar er einu sinni í viku á reiðnámskeiði og ríður út eitthvað þess á milli.
Hrossin sem eru inni núna eru.
- Blakkur gamli sem Heiðmar okkar ríður út á.
- Ísak undan Hrym og Sögu, Helena þjálfar hann í vetur
- Glitnir undan Eldjárn og Heklu = Talsvert taminn
- Vörður 5.v undan Þóroddi og Heklu = Rétt reiðfær
- Haukur 5.v undan Gígjari og Sögu = Er í gangsetningu
- Aþena 4.v undan Þóroddi og Hrönn = Er í gangsetningu
- Meitill 2.v graðhestur undan Álfi og Sögu.
Mynd af Aþenu tekinn í góða veðrinu í dag
Skrifað af Helena Ketilsdóttir