05.02.2012 19:30
Tamningar ganga vel við erum byrjuð að fara í rekstra einu sinni í viku. Heiðmar er einu sinni í viku á reiðnámskeiði og ríður út eitthvað þess á milli.
Hrossin sem eru inni núna eru.
- Blakkur gamli sem Heiðmar okkar ríður út á.
- Ísak undan Hrym og Sögu, Helena þjálfar hann í vetur
- Glitnir undan Eldjárn og Heklu = Talsvert taminn
- Vörður 5.v undan Þóroddi og Heklu = Rétt reiðfær
- Haukur 5.v undan Gígjari og Sögu = Er í gangsetningu
- Aþena 4.v undan Þóroddi og Hrönn = Er í gangsetningu
- Meitill 2.v graðhestur undan Álfi og Sögu.
Mynd af Aþenu tekinn í góða veðrinu í dag
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
24.12.2011 15:38
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
kærleikskveðjur Björgvin Daði, Helena, Hrannar og Heiðmar
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
11.12.2011 22:06
Í dag tókum við inn 5 hross.
Aþena(4v) undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Hrönn
Haukur(5v) undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Sögu
Ísak(7v) undan Hrym frá Hofi og Sögu
Glitnir(6v) undan Eldjárni frá Tjaldhólum og Heklu
Meitill(2v) undan Álfi frá Selfossi og Sögu
Þannig að núna förum við að blogga á ný. Þannig að fylgist með.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
19.10.2011 22:55
Við erum búinn að uppfæra blubbið á ræktunarhryssunum okkar og afkvæmum þeirra hér á heimasíðunni. Sjá Ræktunar hryssur. Hrossin okkar hækka lítilega, Hekla hækkar um 1 stig og einhver afkvæmi hennar eða útaf henni hækka um 1 stig. Alltaf gaman þegar hrossin hækka.
Hér er top 10 listinn fyrir sýnda stóðhesta
1. Spuni frá Vesturkoti 133
2. Gári frá Auðsholtshjáleigu 128
3. Arður frá Brautarholti 128
4. Sjóður frá Kirkjubæ 128
5. Blær frá Torfunesi 127
6. Arion frá Eystra-Fróðholti 127
7. Víðir frá Prestsbakka 127
8. Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu 127
9. Álfur frá Selfossi 127
10. Þeyr frá Prestsbæ 126
Gári, Arður, Blær og Víðir hafa aldrei verið tískuhestar og eflaust ekki fengið bestu merarnar. Góður árangur hjá þeim.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
12.10.2011 22:02
Þá erum við búinn að sleppa öllum hrossum. Núna síðast var Aþena inni undan Þóroddi(8,74.ae) og Hrönn(8,37.ae) og henni til samlætis var Ísak undan Hrym frá Hofi og Sögu. Aþena var gerð reiðfær en hún er fyrsta afkvæmið undan Hrönn sem kemur á tamninga aldur. Hún tamdist mjög vel, hún er rúm og opinn á gangi, fljót að læra og virðist vera frekar sterk. Við erum mjög spennt fyrir henni. Ísak var bara í léttri þjálfun og notaður í teymingar og sem selskap fyrir Aþenu. Við tökum væntanlega aftur inn nóv/des.
Meðfylgjandi myndir er af Aþenu sem folald og í dag áður en við slepptum henni.
Seinni myndin er tekinn úr farsímanum og gæðin eftir því.
Tíminn er fljótur að líða.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
26.09.2011 21:37
Í dag sónarskoðuðum við Sögu og Hrönn. Saga reyndist geld en Hrönn var með 35 daga fyli.
Það sem er fylfullt hjá okkur í ár er því:
Hekla fylfull við Eld frá Torfunesi (a.e. 8,37)
Rún fylfull við Spuna frá Vesturkoti (a.e. 8,92)
Hrönn fylfull við Konsert frá Korpu (a.e. 8,54)
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
19.08.2011 23:40
Gígja var sýnd í gær og á yfirliti í dag. Sýnandi var Bjarni Jónasson. Hún fékk fyrstu verðlaun og er því þriðja hryssan undan Heklu sem fær fyrstu verðlaun. Þar með eru öll sýnd hross undan Heklu komin með fyrstu verðlaun. Gígja fékk 7,87 fyrir byggingu og 8,08 fyrir hæfileika og 8 í aðaleinkunn. Gígja er undan Hrym frá Hofi. Gígja er mjög viljug og skemmtileg alhliða hryssa sem á bara eftir að bæta sig.

Skrifað af Helena Ketilsdóttir
14.08.2011 21:34
Í dag fórum við með Hauk(undan Gígjari) í frí. Hann er orðinn vel reiðfær,svarar öllu vel og við ætlum ekki að gera neitt meira með hann að sinni. Þá tókum við Aþenu inn en hún er undan Þóroddi og Hrönn okkar. Þetta er fyrsta hrossið sem við temjum undan Hrönn og okkur finnst það mjög spennandi. Síðan fórum við með Sögu undir Fróða frá Staðartungu.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
11.08.2011 17:57
Í dag var Hekla sónaskoðuð. Hún er fengin við Eld frá Torfunesi. Hekla hefur verið afar frjósöm og hefur haldið á hverju ári. Hún er búinn að eiga 11 folöld.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
10.08.2011 18:41
Í dag var Rún sónaskoðuð á Sandhólaferju. Hún er fengin við Spuna frá Vesturkoti. Rún er fyrir sunnan á Skák (rétt hjá Hellu), þannig að ef þið vitið um far fyrir eina folald lausa hryssu norður í Eyjafjörð látið okkur þá endilega vita.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
09.08.2011 19:55
Saga kastaði í dag brúnum hesti. Ekkert hvít í honum. Hann er undan Hróðri frá Refsstöðum og Sögu. Baldur Þórarinsson á folaldið.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
08.08.2011 09:03
Það eru um 1,5 mánuður síðan við tókum Ísak(undan Hrym og Sögu) inn. Okkur fannst hann eitthvað slappur svo við fórum með hann til Elvu dýralækni og létum hana taka blóð úr honum til rannsóknar. Niðurstöðurnar voru þessar.
|
Mælingar
|
Normalgildi
|
Niðurstöður
|
|
|
|
|
|
Hemoglobin (g/l)
|
110-170
|
116
|
|
Hematokrit (PCV) (%)
|
30-46
|
31
|
|
Hvít blóðkorn (WBC)x 103/µl
|
6- 12
|
3,9
|
Við erum síðan búinn að gefa honum Járn tvisvar í dag og Ísak er allur að braggast og orðinn allt annar. Vonandi getum við farið að þjálfa hann núna.
Látum myndir af Stapa(undan Þorra frá Þúfu og Heklu) fylgja.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
24.07.2011 22:47
Glæsileg frammistaða hjá Gústafi og Naski á Íslandmótinu í unglingaflokki . Þeir urðu Íslandsmeistarar í fjórgang og enduðu í öðru sæti í tölti. Í fyrra náðu þeir félagar sama árangri. Frábær árangur. Naskur er undan Stæl frá Miðkoti og Heklu(okkar) frá Efri-Rauðalæk.
Ljósmyndin er tekin á Íslandsmótinu í fyrra
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
22.07.2011 21:47
Hrönn okkar undan Smára frá Skagaströnd og Heklu okkar fór í gær undir Konsert frá Korpu. Konsert er undan Sæ frá Bakkakoti og Hátíð frá Hellu. Konsert er með 8,54 í aðaleinkunn. Hann er vel byggður með góð gangskil og vel ættaður.
Gustaf Ásgeir Hinriksson og Naskur(undan Heklu okkar) standa efstir forkeppni fjórgangskeppni unglinga með einkunnina 7,23 á Íslandsmói yngri flokka. Það verður gaman að fylgjast með þessu. A-úrslit eru á sunnudaginn kl. 11.30.
Mynd af Hrönn fylgja með frétt.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir
19.07.2011 23:17
Erum þessa dagana að frumtemja tvo hesta. Vörð 4v undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Heklu okkar og Hauk 4 vetra undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Sögu okkar.
Haukur var inn í vetur og er því aðeins lengra kominn en þó ekki reiðfær. Báðir hestarnir lofa góð. Komum með myndir við tækifæri. Láttum mynd af nýja folaldinu fylgja með.
Skrifað af Helena Ketilsdóttir